ferðaþjónustustefna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur kærlega fyrir mjög gagnlega og mikilvæga umræðu vegna þess að það er ekki oft sem við ræðum atvinnustarfsemi og hvernig ný atvinnugrein er að koma inn í hagkerfið okkar og sér í lagi skiptir máli að það ber ekki bara að horfa til þess að hún vaxi og dafni og skapi hagvöxt og aukna atvinnu og gjaldeyristekjur, sem er auðvitað gríðarlega mikilvægt og er mjög kærkomin búbót í þjóðarbúið, það skiptir líka máli að hún sé sjálfbær og við séum að horfa til framtíðar og að hún sé í sátt við fólkið í landinu.
Virðulegur forseti. Haustið 2022 hófst vinna við uppfærslu á svokölluðum stefnuramma ferðaþjónustunnar til ársins 2030 sem byggir á vinnu sem var unnin á síðasta kjörtímabili. Ég tel að það sé afar brýnt að þegar nýir ráðherrar taka við nýjum málaflokkum þá reyni maður alltaf að nýta þá vinnu sem maður telur að hafi verið vel heppnuð og byggja á því. Við kláruðum þessa uppfærslu í byrjun árs 2023 og í uppfærðum stefnuramma sem myndar grunn að ferðamálastefnu til ársins 2030 eru tólf áherslur sem deilast á lykilstoðirnar fjórar. Þær eru í fyrsta lagi efnahagur, í öðru lagi samfélag, í þriðja lagi umhverfi og svo gestir. Aðgerðaáætlun ferðamálastefnu mun fylgja eftir þeirri framtíðarsýn, markmiðum og áherslum. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni efnahagsumhverfis og samfélagslegs jafnvægis. Í því felst að ferðaþjónustan sé arðsöm og samkeppnishæf, í sátt við land og þjóð, að ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og að ferðaþjónustan sé þekkt fyrir sjálfbæra þróun, gæði og einstaka upplifun.
Í maí 2023 skipaði ég sjö starfshópa sem falið var að vinna tillögur að beinum aðgerðum inn í aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu árið 2030. Gert er ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar á vorþingi 2024 en verkefnið í heild sinni er leitt af stýrihópi á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis. Starfshóparnir sjö ná utan um alla þætti ferðaþjónustu, þ.e. sjálfbærni og orkuskipti, samkeppnishæfni og verðmætasköpun, rannsóknir og nýsköpun, uppbyggingu áfangastaða, hæfni og gæði, heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónustu og svo menningartengda ferðaþjónustu. Yfir verkefninu í heild sinni er síðan stýrihópur skipaður lykilaðilum sem stýra verkefninu ásamt ráðgjöfum á sviði stefnumótunar. Ég get fullvissað hv. þingmann um að hér er virkilega vandað til verka og við gerum þetta í viðamiklu samráði við haghafa og unnið er þétt að verkinu frá maí með fjölda vinnustofa og funda.
Í samræmi við tímaáætlun verkefnisins skiluðu starfshóparnir fyrstu drögum að aðgerðum í aðgerðaáætlun ferðamálastefnu og voru þau drög sett í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda frá 2. nóvember til 30. nóvember. Alls bárust 30 umsagnir og búið er að fara yfir þær og taka tillit til þeirra. Hinn 15. janúar síðastliðinn voru seinni skil starfshópanna sjö til stýrihóps og er stýrihópurinn nú, byggt á þessari viðamiklu vinnu, að samræma og samstilla aðgerðir í heildstæða aðgerðaáætlun.
Virðulegur forseti. Á næstu vikum er áformað að halda opna umræðu- og kynningarfundi um vinnuna víða um land. Miðað er við að stýrihópur skili til mín um miðjan febrúar á þessu ári endanlegum drögum að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030, byggt á framangreindri vinnu. Áformað er síðan að í lok febrúar verði lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi til þinglegrar meðferðar. Ég vek athygli á því að það er afar brýnt að eiga þetta samtal við þingið. Ég get upplýst um það að ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að setja fram aðgerðaáætlun og stefnu í formi þingsályktunartillögu til þess að við getum átt þetta mikilvæga og gagnlega samtal við þingið.