154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

ferðaþjónustustefna.

561. mál
[17:08]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Forseti. Já, það er rétt að þakka hæstv. ráðherra Lilju Alfreðsdóttur fyrir skýr svör og það var einmitt tilgangur þessarar fyrirspurnar að koma umræðunni hingað inn í þingsalinn af því að þetta er auðvitað mjög mikilvæg stefnumótun og aðgerðaáætlun sem hér er verið að vinna og það er mjög margt sem þarf að taka inn í myndina eins og hv. þm. Magnús Árni Skjöld Magnússon var að benda á. Við gleðjumst yfir uppgangi og góðu gengi ferðaþjónustunnar en við vitum líka að þetta er láglaunagrein. Það skapar ákveðið umhverfi sem við ræðum kannski ekki eins mikið hér í þessum sal. En ég hlakka til að sjá tillögurnar að aðgerðunum og ég vona að þar raungerist þetta metnaðarfulla markmið um að verða leiðandi í sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er metnaðarfullt og það er eitthvað sem ég get tekið heils hugar undir. Við verðum þá líka að ræða fjöldann og arðsemina, finna jafnvægið í því, af því að hér hefur fjöldinn aukist mjög mikið en spurningin er: Hver er arðsemin af honum? Hefur ávinningur heimamanna alltaf verið heima, eins og tekið er fram hér í rammanum frá hæstv. ráðherra? Svo er það auðvitað líka upplifunin og náttúrugersemarnar, að þær klikki ekki, ef ég má þannig að orði komast. Þá erum við auðvitað að tala um bæði öryggismálin, slysatíðnina t.d., sem mér finnst allt of há, það er alla vega mín tilfinning, en líka álagsstýringuna sem skiptir mjög miklu máli og hefur áður verið rædd hér í þessum sal, hvernig við getum álagsstýrt þannig að náttúran beri ekki skaða af þeim mikla fjölda sem hingað kemur. Þá erum við auðvitað að tala um þá spurningu, sem er væntanlega næsta skref: Ætlum við að nota efnahagslega hvata til að stýra því?