ferðaþjónustustefna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir mjög gagnlega fyrirspurn og að mörgu leyti mjög áhugaverðar umræður. Ég velti því fyrir mér hvort það sé að verða einhver stefnubreyting hjá Samfylkingunni varðandi það hvernig við nálgumst ákveðnar atvinnugreinar. Hv. þm. Magnús Árni Skjöld Magnússon nefndi að við þyrftum að fara að horfa til þess að hér erum við að tala um störf sem Íslendingar vilja ekki vinna og finnst að það vanti inn í þessa stefnumótun. Ég verð nú að segja að ég er eiginlega hálfundrandi á að heyra þessa athugasemd við þessa stefnumótun, hvort við eigum að fara að gera einhverja athugun á því hvaða störf Íslendingar vilja vinna og hvaða störf Íslendingar vilja ekki vinna. Ef við horfum á hagkerfið okkar og hvaðan útflutningstekjur þessa hagkerfis koma þá ætla ég að nefna tvær til þrjár meginstoðir. Það er í fyrsta lagi ferðaþjónusta og það á sér stað gjörbreyting á öllum þjóðhagsstærðum með tilkomu hennar sökum þess hvað það kemur mikill gjaldeyrir inn. Þetta skiptir mjög miklu máli vegna þess að við erum miklu betur undir það búin, með því að hafa þessar gjaldeyristekjur og stóran gjaldeyrisforða, að mæta ytri áföllum þjóðarbúsins. Í öðru lagi erum við með sjávarútveg og það er mjög mikið af fólki af erlendum uppruna sem starfar þar við mjög góðan orðstír. Og ég bara spyr hvort það sé orðin stefna Samfylkingarinnar að við ættum að hverfa frá þessum meginútflutningsstoðum af því að þetta séu störf sem Íslendingar vilja ekki vinna.