hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins.
Virðulegi forseti. Ríkisútvarpið, útvarp allra landsmanna, starfar samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Þjónusta RÚV er sömuleiðis skilgreind í lögum, nánar tiltekið 3. gr. laga um Ríkisútvarpið. Samkvæmt sömu lögum skal RÚV stofna og reka dótturfélög fyrir aðra starfsemi. Eru það mikilvægar reglur um starfsemi sem fellur undir samkeppnisrekstur. RÚV er rekið fyrir skattfé almennings og því til viðbótar er þjóðarútvarpið kappsamur þátttakandi á auglýsingamarkaði. RÚV hefur sömuleiðis verið duglegt að færa út kvíarnar en nýjasta dæmi um útrás RÚV á samkeppnismarkað er útrás á íslenskan hlaðvarpsmarkað. Mér þykir því tilefni til að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hún telji að hlaðvarpsgerðin sé í almannaþágu, samanber lög um Ríkisútvarpið, hvort hafi farið fram mat á þessari nýlundu, m.a. með hliðsjón af samkeppnissjónarmiðum, hvaða áhrif ráðherra telji að hlaðvarpsgerð RÚV hafi á starfsemi annarra hlaðvarpa sem eru í blómlegum samkeppnisrekstri hérlendis og að lokum hver sé kostnaður RÚV vegna hlaðvarpsgerðarinnar á síðasta ári.