hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins.
Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er hefur Ríkisútvarpið nú í nærri 93 ár miðlað hljóðvarpsefni. Hlaðvörp Ríkisútvarpsins eru unnin og þeim miðlað í fullu samræmi við ákvæði laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Meginmarkmiðið með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu er að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi. Í 3. gr. laga um Ríkisútvarpið segir að það skuli framleiða og miðla vönduðu og fjölbreyttu efni með mismunandi tæknilegum aðferðum til allra landsmanna óháð búsetu. Um dreifingu á efninu segir skýrt í lögunum að Ríkisútvarpið skuli dreifa efni til alls landsins og næstu miða með a.m.k. tveimur hljóðvarpsdagskrám og einni sjónvarpsdagskrá árið um kring. Enn fremur að birta valda hluta efnis breytta eða óbreytta ásamt öðru efni í breyttu eða óbreyttu formi með öðrum miðlunarleiðum, þar með talið að gera efni aðgengilegt almenningi með þeim hætti að hver og einn geti fengið aðgang að efninu og/eða þjónustunni á þeim stað og þeirri stundu sem hann kýs sjálfur. Það gerir Ríkisútvarpið með fjölbreyttum hætti, t.d. með því að gera efni RÚV aðgengilegt á hlaðvarpsveitum og í vefspilara RÚV. Hér er því ekki um að ræða nýja fjölmiðlaþjónustu í skilningi laganna heldur er Ríkisútvarpið að sinna því hlutverki sem Alþingi fól því og að framan er rakið. Einnig þarf að hafa hugfast að innlendir fjölmiðlar eiga ekki bara í samkeppni sín á milli heldur eru í daglegri samkeppni við YouTube, Facebook, Netflix og aðrar streymisveitur og einnig erlend hlaðvörp. Til að innlendir fjölmiðlar sem miðla efni á íslenskri tungu geti mætt samkeppni við erlenda miðla verða þeir að þróa þjónustu sína í takt við kröfur neytenda og þær breytingar sem orðið hafa á tækni og fjölmiðlum á heimsvísu og það á jafnt við um Ríkisútvarpið og aðra innlenda miðla.
Hv. þingmaður spyr hvort að fram hafi farið mat á hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins með tilliti til samkeppnissjónarmiða, sbr. 16. gr. laga um Ríkisútvarpið. Samkvæmt 16. gr. laga um Ríkisútvarpið er það Ríkisútvarpið sem hefur frumkvæði að því að óska eftir heimild ráðherra fyrir nýrri fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Ríkisútvarpið hefur ekki óskað eftir heimild ráðherra vegna nýrrar fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu frá því að lög um Ríkisútvarpið tóku gildi árið 2013. Á það skal bent að samkvæmt 16. gr. laga um Ríkisútvarpið er því einungis skylt að óska eftir heimild ráðherra fyrir nýrri fjölmiðlaþjónustu ef áætlað er að hún muni kosta meira en sem nemur 10% af innheimtu útvarpsgjaldi. Til að setja þetta í samhengi má nefna að árið 2022 nam innheimt útvarpsgjald rúmum 5 milljörðum kr. Ný fjölmiðlaþjónusta Ríkisútvarpsins hefði þurft að kosta rúmar 500 milljónir til að Ríkisútvarpinu bæri að óska eftir heimild ráðherra fyrir henni á grundvelli laga um Ríkisútvarpið. Þá skal þess jafnframt getið að miðlun efnis á nýjum dreifileiðum telst ekki til nýrrar fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Þetta kemur fram í lögum um Ríkisútvarpið og er jafnframt í samræmi við framkvæmd sambærilegra lagaákvæða á hinum Norðurlöndunum.
Þá er spurt: Hvaða áhrif telur ráðherra að hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins hafi á starfsemi annarra hlaðvarpa sem eru í samkeppnisrekstri? Það þarf ávallt að gæta þess að rekstur fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu hafi sem minnst áhrif á almenna samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Hvað hlaðvarpsþjónustu RÚV varðar hefur ekki farið fram sérstakt mat á áhrifum hennar á starfsemi annarra hlaðvarpa á fjölmiðlamarkaði hér á landi. Rétt er að benda á að hlaðvarpsþjónusta RÚV er ekki fjármögnuð með sama hætti og önnur hlaðvarpsstarfsemi og er því í öllu falli ekki í samkeppni við innlend hlaðvörp um sölu viðskiptatilboða. Það hefur verið styrkur norrænna samfélaga að þar starfi einkareknir fjölmiðlar og ríkisfjölmiðlar hlið við hlið og stuðli í sameiningu að því að almenningur hafi aðgang að fjölbreyttri og vandaðri fréttaumfjöllun, menningarefni, barnaefni, fræðsluefni og skemmtiefni.