hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins.
Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kærlega fyrir að vekja máls á þessu hér í þingsal og hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hlusta mikið á hlaðvörp og mér finnst sjálfsagt að þegar Ríkisútvarpið hefur fjárfest í því að búa til dagskrá og búa til efni þá sé hægt að nálgast það á þeim tíma sem hentar, einmitt í gegnum hlaðvarp. En það má vissulega setja spurningarmerki við það þegar verið er að búa til sérstakt efni bara fyrir hlaðvarp, ekki fyrir útvarpið sjálft, og ég held að þessi nýi þáttur, Sjö mínútur, í RÚV hlaðvarpinu sé dæmi um slíkt, ef ég er að skilja það rétt. Þannig að ég vil beina því til hæstv. ráðherra að skoða það sérstaklega. Nú vitum við hver staða íslenskra fjölmiðla er og það er verkefni okkar allra hér inni að finna leiðir til að tryggja örugga og frjálsa fjölmiðlun hér á landi og hluti af þessari fjölmiðlun er einmitt farinn að birtast í hlaðvörpum. Einstaklingar þarna úti eru farnir að taka saman efni, selja aðgang eða selja auglýsingar til að fjármagna slík hlaðvörp og það er auðvitað þannig að við verðum að passa að risastóra ríkisfyrirtækið okkar á þessum markaði sé ekki að hefta samkeppni eða framleiðslu slíks efnis.