154. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2024.

hlaðvarpsgerð Ríkisútvarpsins.

528. mál
[17:23]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og þeim sem hafa lagt hér til umræðunnar. Mig langar til að taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, það að gera efni sem þegar er til hjá fréttastofu RÚV og fjölmiðlun RÚV aðgengilegt almenningi, því er einfaldlega ekki saman að líkja og er ekki það sama og að framleiða sérstaka hlaðvarpsþætti, m.a. um, að því að mér skilst, líðan starfsfólks RÚV. Lýsingar hæstv. ráðherra á samkeppnisstöðu RÚV og baráttunni við m.a. erlendar streymisveitur eru einhvern veginn í svo hróplegu ósamræmi við það sem ég hefði talið að væru rök fyrir því sem við erum að fjármagna RÚV til að gera, að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja og ég held að mér endist ekki tími til að fara ofan í það. En mér finnst samt merkilegt að það hafi ekki farið fram mat á þessari innrás á þennan samkeppnismarkað með tilliti til samkeppnissjónarmiða. Stjórnmálamönnum er mjög tíðrætt um að þeir hafi áhyggjur af frjálsum fjölmiðlum. Kannski er það meira eitthvað sem er sagt heldur en að því fylgi raunverulegar áhyggjur eða aðgerðir vegna þessarar yfirburðastöðu RÚV sem má bara ekki sjá neinn vettvang, getur ekki látið neinn vettvang í friði og það á sama tíma og við horfum upp á tilvistarlega baráttu frjálsra fjölmiðla. Það er auðvitað bara í skugga af þessari yfirburðastöðu sem við höfum skapað RÚV og við stjórnmálamenn berum sannarlega ábyrgð á því. Ég hvet hæstv. ráðherra til að endurskoða þetta viðhorf sitt.