154. löggjafarþing — 59. fundur, 25. jan. 2024.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðaust., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 3. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, en 1. og 2. varamaður á lista hafa boðað forföll. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.