154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

orð ráðherra um aðkomu ríkisins að kjaraviðræðum.

[10:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vil byrja á því að segja að það er að sjálfsögðu fyrst og síðast ábyrgð aðila á vinnumarkaði að vinna að kjarasamningum og semja um kaup og kjör sín í milli. Þrátt fyrir að við búum við það hér að aðkoma ríkisins er töluverð og í mínum huga of mikil þá er það bara veruleikinn sem við búum við og fléttast saman af ýmsum ástæðum, hefðum og venjum og vinnumarkaðsumhverfi og löggjöf og öðru slíku. En ábyrgðin er þeirra.

Síðan vil ég segja, og ég hef haldið því til haga alltaf og mun gera áfram, að það eru gríðarlega mikil verðmæti fólgin í því að ná langtímasamningum séu þeir ábyrgir. Það þýðir að aðkomu okkar þarf að skoða í því ljósi. Það er forgangsverkefni að gera hvað við getum til þess að þau geti og við saman getum náð þessari heildarniðurstöðu. En það eru þau sem eru að semja.

Að sjálfsögðu er ekki markmiðið með þessu að hleypa illu blóði í kjaraviðræður þeirra. Það vill bara þannig til, og mér einhvern veginn finnst það liggja svo í augum uppi, að það ástand sem við erum í núna hefur að sjálfsögðu áhrif á getu ríkissjóðs og hvað getur talist eðlilegt og ábyrgt og skynsamlegt til skemmri tíma og lengri tíma að ríkisfjármálum sé beitt og hversu há viðbótarútgjöld eiga að vera til næstu ára. Við erum þar nefnilega líka að tala um tugi milljarða.

Og það er líka þannig að verðbólgunni er auðvitað, því miður kannski, (Forseti hringir.) alveg sama hvaða fjárútlát er verið að tala um og í hvað þau eru sett, hefur hún bara þessi neikvæðu áhrif á alla heildarmynd. Það er það (Forseti hringir.) sem við þurfum að huga að. Verkefnið að semja og gera ábyrga langtímakjarasamninga, það fer auðvitað ekki neitt.