orð ráðherra um aðkomu ríkisins að kjaraviðræðum.
Virðulegur forseti. Hér kemur kannski skýringin á því hvers vegna ríkisstjórninni hefur ekkert gengið við að ráða niðurlögum þessarar verðbólgu ef hún heldur að verðbólgunni sé sama í hvað peningarnir fara sem ríkisstjórnin eyðir þeim í. Það er auðvitað ekki þannig. Það skiptir máli hvort verið er að eyða peningum í fjárfestingu. Það skiptir máli hvort það er verið að eyða peningum í aðgerðir sem geta einmitt slegið á verðbólgu. Við getum líka hent þessum kjaraviðræðum út um gluggann, eins og þessi ríkisstjórn virðist vera að stefna í að gera, með því að neita að koma til móts við mjög eðlilegar kröfur um að velferðarkerfið hér virki svipað og það gerir á öðrum Norðurlöndum. Vegna þess að hæstv. ráðherra vísaði í að hér væri aðkoma stjórnvalda svo mikil — ja, það er nú t.d. bara þannig á Norðurlöndunum að það þarf ekki þetta mikla aðkomu vegna þess að það eru bara eðlileg kerfi sem taka utan um fólk og hjálpa því að búa við almennileg lífsskilyrði. Því er ekki fyrir að fara hér. Þess vegna hefur þurft að fara fram á mjög miklar krónutölu- eða prósentuhækkanir í kjaraviðræðum. Og hvað gerir það? Það keyrir auðvitað upp verðbólguna. Mér er spurn: (Forseti hringir.) Hefur þessi ríkisstjórn einhverja hugmynd um hvernig hún ætlar að taka á verðbólgunni, (Forseti hringir.) einhverja hugmynd um hvernig hún ætlar að koma til móts við verkalýðshreyfinguna? Mér sýnist ekki.