orð ráðherra um aðkomu ríkisins að kjaraviðræðum.
Herra forseti. Nánast allar kröfur verkalýðshreyfingarinnar um aðkomu ríkisins að kjarasamningum snúa einmitt ekki að einskiptisfjárfestingaratriðum heldur varanlegum útgjöldum og frekari umsvifum millifærslukerfa og tilfærslukerfa. Að sjálfsögðu skiptir máli bæði að krónutöluhækkanir eða hvaða aðferð er notuð þeirra í milli — það skiptir ekki bara máli hvernig hún er hugsuð 2024 heldur líka 2025 og 2026. Það geta varla talist vera ábyrgir langtímasamningar ef það er svo gott sem verið að skrifa út og festa í sessi verðbólgu sem er töluvert hærri, jafnvel tvöfalt á við það sem verðbólgumarkmið Seðlabankans er. Það skiptir máli að það sé horft á þetta í heildarsamhengi (Forseti hringir.) og það sem við blasir núna, hvað sem fólki finnst, og liggur í augum uppi er að það hefur áhrif á heildarsamhengið.