154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

aðkoma ríkisstjórnarinnar að gerð kjarasamninga.

[10:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þegar við lítum til mögulegra mótvægisaðgerða, þ.e. frekara aðhalds eða uppstokkunar og breytinga á þeim verkefnum sem við verjum fjármunum ríkissjóðs í, þá er það auðvitað umhugsunarefni að meiri hluti alls sem við setjum peningana í fer einmitt í tilfærslukerfin og nánast allar kröfurnar eru síðan um að bæta enn frekar í þau, þannig að svigrúm okkar til þess einmitt að líta til þess hvar við getum hagrætt eða breytt minnkar og minnkar. Svo er auðvitað ekki hægt að færa til einhverjar fjárfestingar eða hætta við einhverja einskiptisinnviðauppbyggingu til að fjármagna varanleg rekstrarútgjöld í formi tilfærslukerfa. Þetta hlýtur að vera umhugsunarefni. En það eru sannarlega leiðir til þess að taka til í ríkisrekstri. Ég hef verið að nefna það að við erum með 164 stofnanir í þessu landi. Það getur bara enginn haldið því fram að þær séu allar nauðsynlegar fyrir samfélag sem nær ekki 400.000. Það er mikil yfirbygging. Við erum með verkefni sem einu sinni þótti mikilvægt að fara í en eru það kannski ekki lengur, jafnvel verkefni sem eru gagnleg en ekki endilega mikilvæg. Þannig að ef við erum að meina það að við ætluðum að forgangsraða, m.a. til þess að ná ábyrgum langtímakjarasamningum, jafnvel þannig að það kalli á einhverja frekari fjármuni og varanlega í tilfærslukerfin, hlýtur það að þýða að allt sé undir en ekki eingöngu það að auka útgjöldin, auka skuldsetninguna sem síðan hefur einfaldlega neikvæð áhrif á heildarmarkmiðið. Þetta er bara veruleikinn eins og hann blasir við okkur.

Varðandi millifærslukerfin þá skiptir auðvitað líka máli að við verjum næstmestu (Forseti hringir.) meðal ríkja OECD í barnastuðning og við erum að öðru leyti með sambærileg bótakerfi. Og þegar bent er á vinnumarkaðsmódelið annars staðar (Forseti hringir.) þá er mitt svar líka við því að það verður ekki bæði haldið og sleppt. Við þurfum þá að ganga alla leið og hafa það sambærilegt.