aðkoma ríkisstjórnarinnar að gerð kjarasamninga.
Herra forseti. Það er algjör samstaða í ríkisstjórn um mikilvægi þess að ábyrgum langtímakjarasamningum verði náð. Það er bæði samstaða um það og það er samstaða um að það sé forgangsverkefni. Það er líka samstaða um það innan ríkisstjórnar að það sé gert með ábyrgum hætti. Auðvitað liggur fyrir, eins og hefur gert í öll þessi ár sem þessi ríkisstjórn hefur unnið saman, að það eru mismunandi áherslur um það hvernig slíkum árangri eigi að ná. Hingað til hefur það bara alveg gengið og ég vænti þess að það muni sömuleiðis ganga núna. Við erum ekki búin að útfæra kröfur verkalýðshreyfingarinnar um hvernig sú aðkoma eigi að vera enda eru þau ekki einu sinni búin að ná saman um það sem þau þurfa að ná saman um. Við erum ekki að smíða langtímakjarasamninga fyrir vinnumarkaðinn, það eru þau að gera sín í milli. Á meðan (Forseti hringir.) ræðum við að sjálfsögðu með hvaða hætti möguleg aðkoma okkar gæti verið og það er samstaða um að það sé gert (Forseti hringir.) og það er samstaða um að það sé gert með ábyrgum hætti. Það þýðir að það verður að vera hægt að segja það upphátt að sú staða sem blasir við núna hefur áhrif og þær leiðir sem hægt er að fara verður allar að skoða.