hvatakerfi hjá Skattinum.
Virðulegur forseti. Málefni Skattsins hafa verið nokkuð til umfjöllunar í fréttum núna í vikunni í tengslum við einhvers lags kaupaukakerfi sem hefur verið komið upp í gegnum svokallaðan stofnanasamning sem Skatturinn gerði haustið 2001 við Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Þetta hefur verið sett í samhengi núna í vikunni við mál sem kom upp fyrir þó nokkru síðan í Bretlandi þar sem starfsmenn póstsins voru hafðir fyrir rangri sök og hluti vandans þar var rangur hvati sem hafði verið settur inn í kerfið hvað það varðar að elta þá og ná fram sakfellingu.
Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra um afstöðu ráðherrans til þessa máls og hvort það sé einhvers staðar annars staðar í kerfinu, hvort sem það væru hraðasektir lögreglunnar, niðurstaða dómsmála hjá saksóknara eða einhvers staðar annars staðar þar sem ráðherrann teldi forsvaranlegt að það væri byggt upp hvatakerfi eins og í þessu tilviki sem hefur kannski ekki endilega það að markmiði, að því er virðist, að stuðla að réttum skattskilum heldur mögulega að skapa þann skakka hvata að eftirlitshluti Skattsins sem höndlar með endurálagningar gangi mögulega harðar fram heldur en lög og reglur og raunheimar kalla á.