154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

hvatakerfi hjá Skattinum.

[10:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Að sjálfsögðu er grundvallaratriðið þetta: Skatturinn á að leiðbeina borgurum. Þetta mál er einfaldlega í skoðun í ráðuneytinu, ég hef óskað upplýsinga og svara. Þetta er ekki partur af kjarasamningi en í mínum huga er sjálfsagt og eðlilegt að fá frekari skýringar á þessu. Ráðuneytið hefur ekki aðkomu að útfærslu stofnanasamninga og varðandi það sem birst hefur í fjölmiðlum um að þetta sé hluti þeirra og eins og hjá öðrum þá hef ég einfaldlega óskaði frekari upplýsinga um það. Væri það þannig að skatteftirlit væri háð einhvers konar kaupaukum þá er það óeðlileg staða, óheilbrigð og óeðlileg, og það bara gengur einfaldlega ekki ef svo er. Við erum, eins og ég segi, með málið í farvegi, ég hef óskað eftir upplýsingum og það skiptir máli að þessi mál öll standist skoðun. Ef það er þannig að þetta er eðlilegur hluti af stofnanasamningum og engir afbrigðilegir hvatar þarna á bak við þá er mikilvægt að fá það fram. Ef það eru einhverjir undarlegir hvatar á bak við það sem þarna er gert og fjallað hefur verið um þá þarf það að koma fram þannig að hægt sé að taka það til sérstakrar skoðunar. Ég vil bara að það sé alveg skýrt að við höfum óskað upplýsinga, málið er á mínu borði og eftirlit sem væri háð einhverjum kaupaukum er staða sem gengur einfaldlega ekki.