hvatakerfi hjá Skattinum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þegar maður skoðar stofnanasamningana tvo sem annars vegar eru gerðir við Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga og hins vegar við aðra starfsmenn Skattsins, sem m.a. eru í Stéttarfélagi lögfræðinga, þá er þetta ákvæði um tímabundin viðbótarlaun bara í samningnum við Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Mér finnst það benda til þess að þetta sé fókuserað inn á tiltekin svið Skattsins. Nú kemur fram í fjölmiðlum, ég man eftir því sérstaklega hjá Morgunblaðinu, að það hafi verið óskað eftir skýringum Skattsins að því er virðist fyrir rétt um hálfum mánuði síðan en engin svör hafa borist. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða tímalína sé á þessari skoðun hjá ráðuneytinu, því að það virðist vera að þessi skoðun hafi farið af stað fyrir einhverju síðan, en við vitum öll að mál sem þessi geta dregist von úr viti.