154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

hvatakerfi hjá Skattinum.

[11:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Við höfum fengið upplýsingar nú þegar frá stofnuninni en málið er þó áfram í farvegi. Samkvæmt stofnanasamningi afmarkast fjárhæð viðbótarlauna við 2% af launum allra BHM-félaga hjá Skattinum og er að því leytinu til þá ekki tengd fjárhæðum endurálagningar. Samkvæmt upplýsingum frá Skattinum fá allar starfseiningar Skattsins hlutfallslega jafn háa fjárhæð til greiðslu viðbótarlauna til starfsfólks. Þannig að út frá því þá er það ekki miðað að ákveðnum deildum eða ákveðnum verkefnum eða með einhverja sérstaka viðbótarhvata eða kaupauka gagnvart þeim sem eru í endurálagningum eða öðru slíku. Þannig að það skiptir máli að þetta sé til allra, 2% af launum allra BHM-félaga hjá Skattinum. Ég segi þó að þessi umfjöllun og þær spurningar sem hafa vaknað kalla á frekari upplýsingar og yfirlegu í ráðuneytinu og sú vinna er einfaldlega í gangi.