154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

staða áforma um stuðning við Grindvíkinga.

[11:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Við höfum lagt okkur fram um að koma þeim upplýsingum til skila sem við höfum en ég hef líka lagt á það áherslu að vera einfaldlega heiðarleg um umfang verkefnisins og þann tíma sem það kann að taka. Þar sem nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir er ekki hægt að veita svör um þá útfærslu, hún er ekki enn þá útfærð. Hér er lögð mikil áhersla á það að fólk fái skýr svör og það strax en þá væri hægt að spyrja á móti: Er samtalið ekki mikilvægt? Er ekki mikilvægt að við hér náum sameiginlegum skilningi og samtali um það og komum sjónarmiðum á framfæri um hvaða leið er best að fara? Er samtalið við íbúa ekki mikilvægt? Ég veit að hv. þingmaður er sammála mér í því að það er mikilvægt, ég er bara að benda á að það samtal er ekki einhlítt, það eru gríðarlega mismunandi skoðanir, upplifun og tilfinningar um bæði stöðuna núna og hvernig framtíðin eigi að líta út. Það er ekki hægt að veita svörin strax vegna þess líka að verkefnið snýr ekki eingöngu að því að svara þeim strax (Forseti hringir.) heldur að lágmarka neikvæð áhrif á ríkissjóð og þar skiptir útfærslan gríðarlega miklu máli. Hver dagur sem við tökum í það skilar árangri vegna þess að það hjálpar líka Grindvíkingum og okkur öllum að útfærslan sé þannig að neikvæð áhrif af henni séu algerlega lágmörkuð.