Útvistun heilbrigðisþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Hún er mikilvæg, þörf og tímabær. Víglínur íslenskra stjórnmála um áratugaskeið frá miðri síðustu öld og fram eftir snerust um afstöðuna til samyrkjubúskapar versus markaðshagkerfis. Við enduðum með því að búa til einhvers konar blöndu beggja sem hefur reynst furðu farsæl að mínu viti. Við erum búin að vera með blandað heilbrigðiskerfi frá því að ég man eftir mér og ég held að það hafi reynst okkur ágætlega og við eigum að sjálfsögðu að nýta þá góðu lækna og sérfræðinga og heilbrigðisstarfsmenn sem kjósa að starfa á sjálfstæðum vettvangi, svo fremi að þeirra tilboð séu sambærileg við það sem ríkið býður. En að ætla sér að halda heilbrigðiskerfi Íslands í einhverjum heljargreipum gamla samyrkjubúskaparins eða ríkisforsjárkerfisins er tímaskekkja. Ég finn þann undirtón aðeins hér í upphafserindinu, að þetta eigi allt að vera á vettvangi ríkisins, og ég segi að fyrir þá sem þurfa að leita til bráðamóttökunnar er eiginlega ekkert annað í boði og ef bráðan vanda ber að þá sjáum við alveg hvernig staðan er þar. Þar er ekki nútímaleg þjónusta eða hraðvirk sem skyldi. Sömuleiðis eru hjúkrunarheimilin algerlega háð því núna að það verði drifið í að koma upp nýjum. Það eru mörg hundruð manns á biðlista þar. Þess vegna segi ég: Útvistum öllu sem útvista þarf, tryggjum Íslendingum bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu og stöndum vörð um það, það er grunnþátturinn í okkar ágæta velferðarkerfi, og hættum að tala á gömlu nótunum.