Útvistun heilbrigðisþjónustu.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmönnum sem áttu frumkvæði að þessari umræðu og hæstv. ráðherra svörin. Framsókn hefur verið skýr með að fjölbreytt rekstrarform geti hentað í íslenskri heilbrigðisþjónustu á sama tíma og jafnt aðgengi óháð efnahag og búsetu er tryggt. Við megum aldrei missa sjónar á þeirri áherslu. Heilbrigðiskerfið er til staðar fyrir fólk og í því þarf að vera sveigjanleiki til að bregðast tímanlega við ólíkum þörfum og nýjum áskorunum. Sveigjanleikinn er til staðar eins og við höfum séð í gegnum Covid, í tengslum við náttúruhamfarirnar í Grindavík núna og eins þegar sveigjanleikinn var virkjaður til að vinna á biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum.
Hugtakanotkun skiptir máli. Á Íslandi er opinbert heilbrigðiskerfi en þjónustan er ýmist veitt á opinberum heilbrigðisstofnunum eða aðkeypt í gegnum samninga Sjúkratrygginga Íslands. Þjónustan, óháð rekstrarformi, er þannig öll fjármögnuð með opinberu fjármagni. Samningar um þjónustuna tryggja aðganginn. Þetta er fyrirkomulag sem byggst hefur upp yfir langan tíma og um það ríkir almenn sátt í íslensku samfélagi eins og komið hefur fram hér í umræðunni. Það má ekki gleyma því að íslenska heilbrigðiskerfið kemur vel út í öllum alþjóðlegum samanburði. Kjarninn í okkar blandaða heilbrigðiskerfi er jafnt aðgengi óháð efnahag og á að vera það. Það er að mörgu að hyggja eins og hv. frummælandi Steinunn Þóra Árnadóttir dregur fram í spurningunum sem liggja til grundvallar umræðunni. Til að mynda þarf að viðhalda og nota sveigjanleikann, tryggja menntun og mönnun, tryggja vegvísun í rétta þjónustu á réttum tíma og heildstæða utanspítala- og bráðaþjónustu en þær áskoranir eru og verða til staðar óháð rekstrarformi.