154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

Útvistun heilbrigðisþjónustu.

[11:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þessi umræða hérna — að ætlast til þess að maður geti farið yfir þetta á tveimur mínútum er fáránlegt. Auðvitað er aukin skilvirkni hérna á Íslandi í heilbrigðiskerfinu af því að fólk hleypur og hleypur á hamstrahjólinu alveg endalaust, vinnur miklu meira en allir aðrir. Það er ofsalega skilvirkt. Er það heilbrigt? Nei. Samt er það fólk í heilbrigðiskerfinu sem sinnir þeim störfum. Það er fínt að segja hérna einkarekstur eða einkavæðing eða hvaða hártoganir sem verið er að nota um það, segja þingmenn Sjálfstæðisflokksins, en það þurfi bara gott og mikið gæðaeftirlit til að passa upp á að það virki allt. Það kostar líka. En það kostar einmitt yfirleitt svo mikið að það er alltaf vanfjármagnað, fiskeldið t.d., Samkeppniseftirlitið, dómstólarnir meira að segja líka. Sá kostnaður er ekki tekinn með inn í opinbera kerfið þegar verið er að bera saman kostnaðinn í einkarekna kerfinu og opinbera kerfinu því að gæðaeftirlitið er yfirleitt innbyggt í opinbera kerfið.

Ég veit ekki hvert ég á að fara með þetta. Við búum til svo mikla óvissu þegar það er verið að búa til biðlista. Það er bara verið að búa þá til. Það er verið að svelta kerfið til að það sé hægt að segja: Heyrðu, hérna erum við með aðra lausn. Það er ekki til peningur fyrir opinbera kerfið en það er fullt af pening hérna til fyrir einkareksturinn, æðislegt. Svo eru rukkaðar hvað, 500.000–700.000 kr. fyrir að skipta út augasteini eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir kom inn á áðan.

Svo er ítrekað verið að fjalla um að það hafi nú aldrei verið meiri peningur settur í þetta kerfi en áður. Þá er yfirleitt verið að tala um fjárfestingarnar líka, sem er bara óheiðarlegt að gera. Þær dreifast jafnt á öll árin og það á ekki að taka tillit til þeirra í rauninni þegar verið er að bera saman ár á móti ári. Staðan er einfaldlega sú að það er verið að setja færri krónur t.d. í heilbrigðisrekstur á síðasta ári heldur en 2021, (Forseti hringir.) kannski skiljanlega að einhverju leyti út af Covid. Krónutalan er hærri en per mann er hún lægri. (Forseti hringir.) Per verðgildi krónu er hún lægri. Ef ég skoða excel-skjalið sem birtist á vef Stjórnarráðsins, í fjármálaráðuneytinu, (Forseti hringir.) þá kemur það einfaldlega fram þegar maður flokkar kostnaðinn fyrir rekstrarframlög: Krónutalan er vissulega hærri en per mann er hún lægri, krónan sem þar er undir er verðminni.

(Forseti (OH): Forseti verður að minna hv. þingmenn á að gæta að ræðutímanum.)