tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Frumvarpinu er ætlað að framlengja þann stuðning sem kveðið er á um í fyrrnefndum lögum en þau tóku gildi í nóvember síðastliðnum. Líkt og fram kom í ræðu minni hér í þingsal þegar ég mælti fyrir frumvarpi til nefndra laga 20. nóvember síðastliðinn þá er það ekki léttvæg ástæða sem veldur því að nauðsynlegt er að taka slíkt frumvarp til meðferðar hér á Alþingi Íslendinga. Að mínu mati eiga þessi orð ekki síður við í dag í tengslum við það frumvarp sem hér um ræðir þar sem náttúran heldur áfram sínum gangi á Reykjanesskaga og sífellt verður ljósara að um er að ræða náttúruhamfarir með afleiðingum á samfélag okkar sem eru af stærðargráðu sem hefur ekki þekkst hér á landi í áratugi. Hugur okkar allra er og hefur verið hjá Grindvíkingum sem hafa þurft að takast á við nýjan veruleika fjarri heimili sínu. Við vitum ekki hvernig eða hvenær þessi atburðarás í jarðskorpunni mun taka enda og ljóst er að óvissan reynir verulega á okkur öll en þó mest á Grindvíkinga og þau sem þeim tengjast.
Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að lengt verði það tímabil sem Vinnumálastofnun er heimilt að veita tímabundinn stuðning upp að ákveðnu hámarki til greiðslu launa til starfsfólks á almennum vinnumarkaði í Grindavíkurbæ. Er þannig áfram gert ráð fyrir að ríkið og sveitarfélög greiði starfsfólki sínu í Grindavíkurbæ laun þrátt fyrir að ekki komi til stuðnings á grundvelli þessara laga.
Með frumvarpinu er lagt til að það tímabil sem lögin nái til verði lengt til 30. júní næstkomandi en tímabilið hefði að óbreyttu liðið undir lok þann 29. febrúar næstkomandi. Frumvarpinu er þannig ætlað að lengja það tímabil sem stuðningur getur komið til vegna launa starfsfólks og sjálfstætt starfandi einstaklinga sem ekki geta sinnt störfum sínum á starfsstöðvum í Grindavíkurbæ. Tiltölulega stutt er síðan umrædd lög voru samþykkt hér á Alþingi og hafa áhrif laganna því ekki komið fyllilega fram enda er umsóknarfrestur ekki liðinn vegna greiðslna en með því frumvarpi sem hér um ræðir er lagt til að sá frestur verði framlengdur til 30. september næstkomandi. Ég tel þó að lögin hafi sannað gildi sitt og að mínu mati eru markmið þeirra enn í fullu gildi, þess efnis að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekanda og starfsfólks með starfsstöðvar í Grindavíkurbæ og að draga úr afkomuáhyggjum þess fólks sem lögin ná til. Ég vil því hvetja atvinnurekendur í Grindavíkurbæ til að leita áfram allra mögulegra leiða til að greiða laun starfsfólks svo lengi sem unnt er þannig að einstaklingarnir verði fyrir sem minnstu raski hvað það varðar.
Áfram er gert ráð fyrir að taki atvinnurekandi, sem fengið hefur stuðning til greiðslu launa á grundvelli frumvarpsins, ákvörðun um úthlutun arðs skuli hlutaðeigandi atvinnurekandi endurgreiða Vinnumálastofnun þann stuðning sem hann hefur fengið á grundvelli laganna. Í þessu sambandi er í frumvarpinu miðað við arðsúthlutanir á tímabilinu 1. mars 2024 til og með 30. júní 2025 en í gildandi lögum er miðað við tímabilið 1. mars í ár til og með 28. febrúar á næsta ári.
Virðulegi forseti. Við erum enn í jarðfræðilegri atburðarás og við vonum auðvitað öll að aðstæður skýrist sem mest á næstu vikum og mánuðum. Þar til það gerist er að mínu mati nauðsynlegt að leita allra leiða til að koma til móts við fólkið sem búið hefur í Grindavík og þetta frumvarp er liður í því en stjórnvöld munu að sjálfsögðu hér eftir sem hingað til fylgjast náið með framvindu mála.
Áður en ég lýk máli mínu vil ég leggja sérstaka áherslu á að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi sem allra fyrst í ljósi þess hve aðkallandi það er. Ég legg að lokum til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.