tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég vil lýsa ánægju minni með að þetta frumvarp sé fram komið til að draga úr þeirri óvissu sem hvílir á samfélaginu í Grindavík og fólkinu sem þar bjó en er nú svo sem ekki þar lengur. Í vikunni fékk ég tækifæri til að fara til fundar við atvinnurekendur í Grindavík og hljóðið var mjög dauft. Fólk hefur ekki getað komið fyrirtækjunum sínum af stað eða hafið framleiðslu. Margir atvinnurekendur eru að velta fyrir sér að flytja starfsstöðvarnar frá Grindavík og halda áfram framleiðslu, rekstri sinna fyrirtækja annars staðar. Það er auðvitað áhyggjuefni ef þetta gerist í miklum mæli. Tilgangur þessa frumvarps á sínum tíma var að reyna að viðhalda ráðningarsambandi. Einstaklingar í Grindavík gátu auðvitað bara leitað sjálfir beint til til Vinnumálastofnunar og fengið atvinnuleysisbætur en þarna var fyrst og fremst verið að horfa til þess að reyna að viðhalda ráðningarsambandinu. Maður veltir fyrir sér á þessum tímapunkti getu fyrirtækjanna til þess bara yfir höfuð að viðhalda ráðningarsambandi og hvort hæstv. ráðherra geti á þessum tímapunkti veitt einhverjar upplýsingar um það hvort þeir sem hafa starfað í Grindavík hafi þurfti að leita beint til Vinnumálastofnunar eftir bótum eða hvort fyrirtækin séu að nýta sér þetta úrræði, þannig að maður geti áttað sig á því hvernig þetta stendur allt saman (Forseti hringir.) því að ef tilgangi frumvarpsins hefur ekki verið náð þá væri þetta til einskis í sjálfu sér.