154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

609. mál
[12:10]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir hér að staðan er flóknari heldur en hún var fyrir þessum tveimur mánuðum þegar ég mælti fyrir því frumvarpi sem hér er verið að mæla fyrir breytingum á lögum um, einfaldlega vegna þess að mörg fyrirtæki standa enn frekar frammi fyrir þeirri ákvörðun núna hvort þau vilji reyna að hefja atvinnustarfsemi annars staðar eða ekki.

Aðeins til að bregðast beint við spurningu hv. þingmanns, sem snýr í rauninni að því hversu mörg hafi nýtt sér þetta, þá eru þetta um 600 manns eða svo, rúmlega það, sem hafa fengið greitt í gegnum þetta stuðningsúrræði. Það eru, ef ég man rétt, um 55 fyrirtæki sem hafa sótt um slíkan stuðning og rúmlega hundrað af þessum 600 manns eru einstaklingar sem hafa sjálfir sótt um. Það gefur okkur aðeins hugmynd um að það er alla vega verið að nýta þetta. Það er heimild í lögunum að sækja um styrkinn alveg fram til loka maí, sem framlengist síðan núna ef þetta frumvarp verður að lögum, þannig að við eigum von á því að mörg fyrirtækjanna eigi enn þá einfaldlega eftir að sækja um. Þess vegna er það mat okkar að það sé mikilvægt að framlengja í þessum lögum, einfaldlega til að hafa það úrræði að aðstoða fyrirtækin sem það geta við að greina að greiða laun.