154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

609. mál
[12:14]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég geri mér í hugarlund að flest þeirra fyrirtækja sem ekki hafa sótt um séu annaðhvort í þeirri stöðu að hafa ekki talið sig þurfa þess enn sem komið er en séu sennilega mörg hver að hugsa sinn gang hvað það varðar, sérstaklega eftir þá atburði sem urðu núna í janúar. Þess vegna er mikilvægt að hafa þetta úrræði til staðar. Það grípur þegar á þarf að halda. Fjöldi þeirra sem nú þegar hafa sótt um myndi ég segja að væri ekki vísbending um að ráðningarsambandið hafi verið slitið heldur kannski þvert á móti, það eru þá líkur á því að þar séu ráðningarsambönd enn til staðar. Það eru einhvers staðar á bilinu 20–50 manns sem hafa sótt um almennar atvinnuleysisbætur, eftir þeim upplýsingum sem ég hef, sem er ekki mikill fjöldi og bendir einmitt til þess að það hafi tekist hingað til að halda í ráðningarsambönd. En auðvitað megum við búast við því að þarna geti orðið breytingar á en eftir sem áður mikilvægt að þetta úrræði sé til til að reyna að halda líflínunni á milli atvinnurekanda og launamanns.