154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

616. mál
[12:28]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega hárrétt sem hv. þingmaður segir, það er þessi einhvern veginn fordæmalausa staða og mikla óvissa. Ef við hugsum til úrræðanna í Covid og skilyrða og annars slíks — jú, við héldum sannarlega fyrst að þetta yrði skemmri tími sem síðan varð lengri, en við vorum allan tímann algerlega örugg um hvað tæki við og þess vegna vorum við að fjárfesta með þeim hætti sem við gerðum.

Þarna þarf að vega og meta. Svigrúmið þarf auðvitað að vera til staðar fyrir fólkið til að geta haldið sínum atvinnurekstri áfram. En það þarf líka að gera það í samtali við íbúa og þá sem eru með þessi fyrirtæki vegna þess að það er ekki hægt að stilla það þannig af að þau geti ekki fært sig af því að þau eigi að taka óvissuna á sig til að geta viðhaldið einhverri von fyrir bæjarfélagið. Auðvitað er hægt að treysta því að verði forsendur til að byggja upp samfélagið að nýju þá muni ekki standa á fólki, hvort það eru Grindvíkingar, aðfluttir, innfæddir eða aðrir, að taka þátt í því og koma með rekstur sinn inn í bæjarfélagið. Þetta eru umbreytingar og eðlisbreyting á þessu verkefni, þá erum við með ákveðin markmið og þess vegna höfum við aðeins — ég hef fyrir mitt leyti hugsað: Heyrðu, rekstrarstuðningur til fyrirtækja er auðvitað augljós eitthvað aftur í tímann. En hvert á svigrúmið að vera með tilliti til meiri óvissu sem er nú en var kannski fyrir tveimur mánuðum síðan þar sem við leyfðum okkur að vona að þetta yrði til skemmri tíma, sem nú liggur fyrir að er alla vega ekki? Þá þurfa þessi markmið með mismunandi aðgerðum dálítið að haldast í hendur. Við getum ekki verið með eitthvert eitt eða tvö markmið með einu úrræði og einhver allt önnur markmið með hinu úrræðinu. Þau þurfa líka svolítið að tala saman. Þess vegna þurfum við að vera í samráði, bæði þegar við smíðum frumvarpið og auðvitað líka í þinglegri meðferð þannig að við séum öll á sama stað með hvað við erum að gera, hvers vegna við erum að gera það og hver eru markmiðin með því. En heildarmarkmiðið er auðvitað bara að halda í þessa von en gera fólki kleift að halda áfram.