154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

618. mál
[12:42]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og með fyrri frumvörp sem hér hafa verið kynnt í dag til hjálpar stöðunni í Grindavíkurbæ þá lýsi ég ánægju minni með að það sé verið að framlengja þetta úrræði og jafnframt að það sé verið að hækka tölurnar, það skiptir máli, og líka fjölda þeirra sem búa á heimili. Ég nefndi þetta einmitt þegar frumvarpið var til umræðu upphaflega, hvort talan fjórir, fjórir í heimili, væri hin rétta tala. En það er fínt að það sé verið að breyta þessu. Ég las eina Facebook-færslu frá ungri konu sem leigði hjá Bríeti sem sagði að sú tala sem hún fékk í stuðning hefði engan veginn dugað fyrir húsaleigunni þannig að hún var komin í skuld upp á 90.000 kr. bara á einum eða tveimur mánuðum, þannig að vandamál margra eru mikil og margir lýsa yfir miklum fjárhagsáhyggjum. Hér erum við með byggingarfélög eða fasteignafélög eins og Bjarg og Bríeti sem sinna þessum verkefnum núna, að fjárfesta í íbúðum, Bríet til leigu og síðan Bjarg fyrir þessa tekjulægri. Við getum ekkert horft fram hjá því að þetta hefur auðvitað áhrif inn á markaðinn. Maður tók eftir því að um leið og fyrirheit komu frá ríkisstjórninni um að kaupa eignir Grindvíkinga eða borga þá út úr þeim eignum sem þeir eiga þá hafði það strax áhrif á markaðinn. Við erum búin að sjá það í fréttum í vikunni að þetta er farið að hafa áhrif, bæði í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. (Forseti hringir.) Sér hæstv. ráðherra einhver tækifæri til þess að bæta í á framboðshliðinni til að við séum ekki að lenda í þessum skorti sem við erum alltaf að lenda í hverju ári?