154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

618. mál
[12:47]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar. Við erum í þeirri stöðu að okkur fjölgar hér á landi, bæði vegna þess að hér hefur verið kraftur í atvinnulífinu og það er verið að flytja inn vinnuafl til þess að vinna m.a. þau störf sem Íslendingar hafa ekki viljað vinna og ferðamannaiðnaðurinn er vaxandi. Það verður áfram eftirspurn eftir vinnuafli og við þurfum að skaffa því vinnuafli og því fólki sem flytur hingað til landsins öruggt skjól og þak yfir höfuðið. Nú ríkir óvissa en ef það verður að vissu að Grindvíkingar geti ekki á næstu misserum, jafnvel árum, farið heim aftur þá kemur að þessum uppkaupum ríkisins á eignum í Grindavík og að Grindvíkingar vilji þá finna sér húsnæði sem er í einhverju samræmi við það sem þeir áttu í Grindavík. Grindavík er stöndugt samfélag og húsnæðiskostur í Grindavík er mjög góður. Það þóttu tímamót þegar blokk reis í Grindavík. Flestir eiga þessi fínu einbýlishús og fínu raðhús sem þeir hafa komið sér upp vegna þess að efnahagsleg staða í Grindavík hefur verið góð í gegnum tíðina. Við þurfum væntanlega að horfa til þess að byggja einhverjar þær eignir sem Grindvíkingar vilja þá eiga til framtíðar. Ég held að við höfum flutt inn um 500 hús þegar gosið átti sér stað í Vestmannaeyjum. Er bara ekki komið að þeim tímapunkti að við förum að gera það núna, af því að það tekur tíma? Allt tekur tíma og fasteignamarkaðurinn er auðvitað tímafrekur þannig að ég spyr: Er ekki rétt að fara að bretta upp ermar hvað það varðar?