sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni. Við settum þess vegna af stað spretthóp strax í nóvember til þess að skoða þessa hluti sem skilaði af sér núna um áramótin og erum að setja af stað hóp sem getur þá farið og framkvæmt það sem þar er lagt til. Það þarf að leggjast aðeins yfir hluti eins og: Hvernig getum við hvatt til þess? Hvernig getum við tryggt ákveðna fjármögnun? Hvernig getum við tryggt að allir eigi kost á að taka þátt í því? Það eru fjölmörg fyrirtæki og meira að segja innlend fyrirtæki sem framleiða slíkar einingar. Við megum ekki missa fókusinn á því að aðalatriðið er að framleiða nægilega mikið af góðum húsum sem standast íslenskar aðstæður til þess að koma til móts við þessa bráðaþörf sem við erum að sjá og þá til hugsanlega til meðallangs tíma og jafnvel lengri tíma, eins og hv. þingmaður nefnir, þannig að það er eitt. Við þurfum að leita allra leiða til að geta aukið framboðið og framkallað framboðshvetjandi aðgerðir.
Auðvitað er stærsta aðgerðin sú og hún er meira að segja algjörlega óháð þessum atburðum í Grindavík, þ.e. mikilvægasti hluturinn er sá að hér í þessu samfélagi náist samstaða um að bæði kjarasamningar séu gerðir þannig og að verð á vöru og þjónustu og öðru slíku sé með þeim hætti að verðbólga fari niður og vextir fari niður þannig að aðstæður skapist á hinum almenna byggingamarkaði til að byggja miklu meira. Það tekur vissulega tíma en það eru engu að síður ágætar greiningar til og íbúðum hefur fjölgað á sölu núna, hugsanlega vegna þess að ríkið sté inn og bauðst til að kaupa ákveðnar eignir sem verktakar fóru þá og kláruðu þannig að það hefur verið meira framboð á íbúðarhúsnæði heldur en leit út fyrir nokkrum vikum. En meira þarf til, ég er sammála hv. þingmanni um það, og þar þurfum við að gera allt sem mögulegt er til að auka framboðshlið byggingamarkaðarins.