sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þetta og önnur frumvörp tengd Grindavík. Það er von mín að hér innan þingsins fái þessi frumvörp öllsömul flýtimeðferð en að við pössum okkur þó að við séum ekki að gera nein mistök.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í 2. gr. frumvarpsins sem fjallar um hámarksfjárhæðir. Ég er hjartanlega sammála hæstv. ráðherra um að það megi hækka húsnæðisstuðninginn fyrir einstaklinga og það er að sjálfsögðu ánægjulegt að verið sé að taka tillit til stærri fjölskyldna. En mig langar aðeins að gagnrýna það að þessar upphæðir sem þarna eru eru bara allt of lágar. Fyrir það fólk sem er að reyna að fara út á markaðinn til þess að leigja húsnæði þá er alls ekkert óalgengt, sérstaklega ef fólk er að leigja hérna á höfuðborgarsvæðinu, að sjá leigu fara vel yfir 300.000 kr. Til að koma til móts við þetta þá virðist 3. gr. hafa verið sett þarna inn, um að hækka hlutfallstöluna úr 75% í 90%, en það hjálpar lítið til þegar upphæðirnar sjálfar hækka ekki neitt. Þannig að viðmiðin við greiðsluna þegar hún var 75% var t.d. fyrir tvo heimilismenn 198.000. Nú er viðmiðunartalan komin upp í 90% en talan er enn þá 198.000. (Forseti hringir.) Mig langar að vita hvort ráðherra telur ekki að það hefði ekki þurft að uppfæra 2. gr. og tölurnar þar.