sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég held að það sé svo sannarlega þörf á því að fara í að skoða kostnað á leiguhúsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu og kannski í Reykjanesbæ, sérstaklega fyrir þetta verkefni, og gera það sérstaklega núna. Ég vona að einhver í þeirri nefnd sem málið fer í óski eftir minnisblaði með nýjustu tölum um slíkt þannig að hægt sé að fara yfir þessar tölur vegna þess að þær eru allt of lágar. Sennilega þyrfti að færa allt upp um einn flokk til að það færi að tikka rétt inn.
Það hefur einnig komið gagnrýni á það að fólk þurfi að borga hita og rafmagn og fleiri slík gjöld á tveimur stöðum í einu. Þetta frumvarp kemur ekkert til móts við það. Það er annað tengt húsnæðisstuðningnum sem ekki hefur verið leyst enn þá og það er fólk sem leigði hjá leigufélögum í Grindavík og leigufélögin eru að krefjast þess að það borgi leigu af húsnæði sem því er bannað af ríkinu að fara inn í. Þarna þyrfti að skoða hvort ekki sé hægt að gera eitthvað við það.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í lokin: Í 5. gr., „Lög þessi skal endurskoða eigi síðar en fyrir lok júní 2024.“ — Miðað við fyrri reynslu af því að búa til allt of stutt frumvörp í tengslum við húsnæðisstuðninginn, hefði ekki verið best að hafa þetta út þetta ár því að eins og við erum búin að heyra er enginn að fara inn í Grindavík að búa þar, sennilega ekki á þessu ári, kannski ekki á næsta?