154. löggjafarþing — 59. fundur,  25. jan. 2024.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

618. mál
[13:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það að búa við óvissu tekur mjög á sálina hjá öllum og það á sérstaklega við þegar það snýr að grunnþörfum eins og húsnæði. Það er því miður búið að vera þannig fyrir fjölda Grindvíkinga að þau hafa þurft að vera í húsnæði sem er allt of lítið og hentar þeim ekki, oft vegna þess að þau töldu sig bara vera að tjalda til nokkurra nátta. En því miður er ástandið þannig að það er að lengjast í þessu og því mikilvægt að það sé haldið vel utan um fólk á þessum erfiðu tímum.

Eins og hæstv. ráðherra benti á þá er verið að skoða hvað eigi að gera til lengri tíma með uppkaup og annað. Eitt af því sem hefur verið rætt í tengslum við það er að þegar verið er t.d. að kaupa Grindvíkinga út úr sínu húsnæði, ef það gerist í miklu magni þá mun það hafa mjög slæm áhrif fyrir framtíð byggðar í Grindavík. Það að hafa svona sérstakan stuðning eins og við höfum hér og vita að hann geti verið í lengri tíma en bara nokkra mánuði getur einmitt skipt sköpum fyrir það fólk sem vill flytja aftur en þarf að bíða kannski í eitt ár eða tvö þangað til það er hægt. Þá er mikilvægt að það hafi þennan valkost.

Það sem ég gagnrýni einna helst við framlengingu þessa stuðningsúrræðis er þetta með hámarksfjárhæðirnar. Það er sennilega verið að koma til móts við fólk með því að hækka hlutfallstöluna í 90% en með því að hækka ekki á sama tíma hámarksfjárhæðina þá er þessi hækkun sennilega bara auðveld setning til að tala um pólitískt en hefur ekki nein áhrif praktískt á Grindvíkinga. Þetta þurfum við að passa, að við séum að hjálpa fólki en ekki bara að segjast vera að hjálpa fólki. Því legg til við hv. velferðarnefnd að hún virkilega skoði þennan kostnað, þessar viðmiðunartölur. Eru þessar tölur 90% af þeim kostnaði sem er við það að leigja húsnæði annaðhvort á Reykjanesi eða í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu? Þarna dugir ekki að nota einhver meðaltöl fyrir landið heldur verðum við að horfa til þess svæðis sem fólk er að horfa á að flytja til.

Við þurfum að passa að við virkilega höldum vel utan um þennan hóp og að við virkilega séum að gefa þeim valkosti. Það er nóg annað sem þau hafa sem áhyggjur og óvissu. Það að tryggja að þau geti haft þak yfir höfuðið er grundvöllur fyrir það að við getum farið að byggja upp framtíð þeirra, hvar sem hún verður.