vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vörugjöld af ökutækjum, eldsneyti o.fl., fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Þannig háttar til að við þinglega meðferð frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld og fleira, sem var 468. mál, voru gerð tæknileg mistök sem þarf að leiðrétta. Leiðréttingin kemur fram í 1. gr. þessa frumvarps sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Í stað orðanna „á árunum 2022–2023“ í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVIII í lögunum kemur: frá 1. janúar 2022 til 1. október 2024.“
Það er því í stuttu máli lagt til að þessi tæknilegu mistök sem urðu við lagasetninguna hér fyrir jól verði leiðrétt þannig að ákvæðið sem varðar skráða losun húsbíla haldi gildi sínu til 1. október 2024.