154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

styrking tilfærslukerfa og kjarasamningar.

[13:38]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég held að við getum mörg tekið undir að það væri betra ef fólk væri ekki að lenda í vandræðum varðandi leikskólana en ég ætla samt að fá að benda á að þetta er eitt ár sem við höfum lent víða í vandræðum með og börn eru börn í miklu lengri tíma en þetta eina ár. Barnabætur greiðast til fleiri einstaklinga og lengur en í þetta eina ár sem börn eru í leikskóla. Við getum ekki snúið okkur undan því að það þarf að bæta kjarastöðu fólks með eldri börn, barnmörg heimili, og þar þarf ríkisstjórnin að koma að og ríkisstjórnin gegnir líka lykilhlutverki í að fjármagna betur eða a.m.k. auka svigrúm sveitarfélaga til að fjármagna betur leikskólastigið. Varðandi leigubætur þá hefur frumvarp þess efnis ekki enn komið hingað inn í þingið, það er búið að tala um þetta síðan í lífskjarasamningunum.

Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé næg samstaða í ríkisstjórninni til að taka á þessum stóra málaflokki, í ljósi þess að hæstv. fjármálaráðherra talaði fyrr í þessum mánuði um að hún hefði áhyggjur af því að þær kröfur sem fram væru komnar væru ekki í takt við þær breytingar og þær vendingar sem ættu sér stað í bótakerfinu (Forseti hringir.) og hún teldi að mörgu leyti að þær breytingar sem um ræðir væru ósanngjarnar fyrir fólk sem lenti á jaðrinum. Tekur hún undir það?