154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

veiðistjórn grásleppu .

[13:41]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég spyr í þetta sinn hæstv. matvælaráðherra og það er vegna sjötta máls á dagskrá þingfundar okkar hér í dag, um kvótasetningu grásleppu. Ég velti því fyrir mér hvort það hafi orðið einhver kúvending á stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í sjávarútvegsmálum, hvort Vinstrihreyfingin – grænt framboð sé núna að taka undir það að halda áfram að færa hér auðlindirnar okkar, sameiginlega auðlind þjóðarinnar, á fárra hendur. Aðferðafræðin sem er verið að beita hér í dag er í rauninni fordæmalaus. Frá því að ég kom á þing hef ég aldrei áður upplifað það að ráðherrann sjálfur sem smíðaði frumvarpið hafi í rauninni gert það burtreka, sennilega út af grasrótinni sinni, ég býst við því, og nú er það meiri hluti atvinnuveganefndar sem leggur frumvarpið fram. Ég velti fyrir mér — þetta eru í rauninni þær vangaveltur og þarf ekkert að tíunda þær meira. Við í Flokki fólksins, og ég veit að Píratar hafa líka verið algerlega inn á þessari línu, höfum verið að berjast fyrir því að við fáum að halda auðlindunum okkar í þjóðareign, að það sé ekki verið að færa auðlindina okkar ítrekað á fárra hendur. Nú hefur kvótasetningin sýnt það svo um munar, samþjöppun í greininni og annað slíkt. Núna er búið að kvótasetja sæbjúgu, hvað þá annað, það eru eiginlega engin takmörk fyrir því hvað á að kvótasetja. Og nú er það grásleppan þar sem örfáir fullorðnir kallar sem nenna ekki lengur að veiða grásleppu hlakka til að láta íslenska skattgreiðendur færa sér nokkrar milljónir á silfurfati fyrir það eitt að kvótasetja grásleppu sem þeir selja síðan til að innleysa sína peninga. (Forseti hringir.) Hefur stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kúvenst í kvótasetningarmálum og sjávarútvegsmálum?