154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

veiðistjórn grásleppu .

[13:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra og hæstv. matvælaráðherra fyrir svarið. Það er orðið dálítið dapurt ef ég þekki betur grasrót Vinstri grænna en formaðurinn sjálfur því að það liggur algjörlega á borðinu að þetta er ekki það sem er á borði Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að halda áfram að kvótasetja hér sameiginlegar sjávarauðlindir okkar. Það liggur náttúrlega algjörlega á borðinu.

Hvað lýtur að stjórnarskránni, jú, ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það samstarf sem var náttúrlega um margt mjög gott en ákveðin vonbrigði hvað það varðar. Það var Flokkur fólksins sem í rauninni vildi fá fullt verð fyrir aðgang að auðlindinni. Á því virtist allt stranda vegna þess að eitthvað átti nú að vera sanngjarnt og eðlilegt, sem enginn veit að vísu hvað þýðir. En það að atvinnuveganefnd skyldi taka það upp hjá sjálfri sér að koma með þetta frumvarp er algerlega út í bláinn, segi ég sem fulltrúi atvinnuveganefndar, það er algerlega út í bláinn að þeir í atvinnuveganefnd hafi fundið það upp hjá sjálfum sér. Það var að einlægri ósk hæstv. matvælaráðherra sem treysti sér ekki til að koma með frumvarpið sjálf aftur inn í þingið því að hún hefði aldrei komist áfram með það frekar en að það mun fara áfram nú.