154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

mannúðaraðstoð á Gaza.

[13:47]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Daginn eftir að Alþjóðadómstóllinn í Haag komst að þeirri niðurstöðu að koma yrði fólki á Gaza til bjargar með meiri mannúðaraðstoð, að auka þyrfti aðgengi mannúðaraðstoðar að Gaza, komst utanríkisráðherra Íslands að þeirri niðurstöðu að það ætti að skrúfa fyrir fjármagn til þeirrar stofnunar sem hæstv. forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa sagst með stolti vera að styðja, til marks um stuðning sinn við óbreytta borgara á Gaza sem horfast nú í augu við hungursneyð og skelfilegar aðstæður sem Alþjóðadómstóllinn í Haag lýsti yfir að væru til þess fallnar að líta mætti svo á að mögulega sé þjóðarmorð í gangi á Palestínubúum. Daginn eftir að þessi bráðabirgðaúrskurður fellur eru fyrstu viðbrögð íslenskra stjórnvalda að skrúfa fyrir mannúðaraðstoð til Gaza.

Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún sé stolt af þessari stefnu ríkisstjórnar sinnar, hvort hún sé stolt af þessum viðbrögðum Íslands við þessum sögulega úrskurði Alþjóðadómstólsins, hvort hún sé stolt af utanríkisþjónustu Íslands um þessar mundir.