154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

mannúðaraðstoð á Gaza.

[13:49]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrirspurnina. Ég vil segja það hér, og það hefur komið skýrt fram í fjölmiðlum í dag, að ég legg á það ofuráherslu að Ísland haldi áfram sinni stefnu um öfluga mannúðaraðstoð innan Gaza. Við höfum verið að auka framlög okkar til þessarar tilteknu stofnunar sem hér um ræðir og þar höfum við raunar verið meðal þeirra þjóða sem hvað mest hafa lagt til, svona miðað við höfðatölu. Hins vegar er ljóst að þær fregnir sem bárust af mögulegri framgöngu starfsmanna þessarar stofnunar vöktu hörð viðbrögð, ekki bara hjá hæstv. utanríkisráðherra heldur hjá ýmsum þeim þjóðum sem við vinnum þétt með og í raun og veru felst sú ákvörðun sem við heyrðum um á laugardag fyrst og fremst í því að leitað verði skýringa á því hvernig stofnunin hyggst taka á þessum ásökunum. Það liggur fyrir að okkar kjarnaframlag til þessarar stofnunar hefði átt að renna til hennar einhvern tímann núna á fyrsta ársfjórðungi en samkvæmt því sem fram kom í máli utanríkisráðherra í ríkisstjórn í morgun gerum við ráð fyrir að það muni skýrast á næstunni hvernig nákvæmlega verður tekið á þeim ásökunum sem settar hafa verið fram gagnvart einstökum starfsmönnum stofnunarinnar.

Ég vil segja það mjög skýrt hér að íslensk stjórnvöld eru afskaplega meðvituð um það hörmungarástand sem ríkir á Gaza í mannúðarmálum og það liggur algerlega fyrir að við munum halda áfram að styðja við mannúðaraðstoð á svæðinu. Við erum með skýra ályktun Alþingis og erum líka með tilmæli Alþjóðadómstólsins. Við erum líka í þéttu samráði við Norðurlöndin og önnur þau ríki sem við vinnum hvað þéttast með í þessum málum og eins og við vitum hafa viðbrögð þeirra verið mismunandi. Við munum áfram þrýsta á það í gegnum alþjóðasamstarf að komið verði á varanlegu vopnahléi, sem er kannski það mikilvægasta sem hægt er að gera í þessum hörmungarmálum um þessar mundir.