154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

mannúðaraðstoð á Gaza.

[13:51]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég skil það þá sem sagt rétt að hæstv. forsætisráðherra geri enga athugasemd við þessa ákvörðun, þessa tilkynningu og þessi viðbrögð utanríkisráðherra. Ég les það úr þessum svörum þótt það hafi ekki komið skýrt fram. Í þessu samhengi varðandi vopnahlé strax og viðbrögð þá finnst mér, eftir að út kom bráðabirgðaúrskurður Alþjóðadómstólsins í Haag, í raun kominn töluvert meiri þungi í ásakanir gagnvart Ísraelsher varðandi stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni, þjóðarmorð og hvatningu til þjóðarmorðs innan Ísraels.

Hæstv. forsætisráðherra svaraði fyrirspurn frá mér síðast varðandi viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael og minnkun á stjórnmálasambandi við Ísrael vegna þessara ásakana eitthvað á þá leið að það þyrfti nú alþjóðasamfélagið til til þess að við værum tilbúin að vera með einhverjar aðgerðir gagnvart Ísrael. Telur hún bráðabirgðaúrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag hafa breytt einhverju um þá afstöðu sína? Telur hún líklegt að hægt sé að ná meiri samstöðu um það núna að beita Ísrael viðskiptaþvingunum, (Forseti hringir.) ríki þar sem Alþjóðadómstóllinn er búinn að komast að niðurstöðu um að það séu líkur á að verið sé að fremja þjóðarmorð á palestínsku þjóðinni?