154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

mannúðaraðstoð á Gaza.

[13:53]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Ég held að það sé mikilvægt að við tökum úrskurð Alþjóðadómstólsins mjög alvarlega og ég vísaði í hann í mínu fyrra svari þar sem kveðið er á um að það er mjög mikilvægt að halda áfram að tryggja mannúðaraðstoð inn á þetta svæði og á það legg ég ofuráherslu. Ég vil nefna það, af því að ég kom því ekki að í fyrra svari, að Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna átti upplýsingafund með fulltrúum framlagsríkja í gær þar sem fulltrúar íslenska utanríkisráðuneytisins sátu. Það er ljóst að stofnunin tekur þetta mál mjög alvarlega og er að skipuleggja sín viðbrögð í þessum málum. Ég vil líka nefna það að stofnunin hafði sjálf sett af stað úttekt óháðra sérfræðinga vegna ýmissa ásakana sem hafa varðað hlutleysi hennar á undanförnum árum og skrifstofa innra eftirlits Sameinuðu þjóðanna hefur verið virkjuð vegna þessara ásakana sem hafa komið fram varðandi einhverja starfsmenn stofnunarinnar. Svo vil ég bara segja það hér líka að það er mjög mikilvægt, og hefði betur farið á því að það hefði verið gert fyrr, fyrir þessa ákvörðun, (Forseti hringir.) að utanríkismálanefnd Alþingis verði höfð með í ráðum og mér skilst að sá fundur sé boðaður á morgun og að nefndin öll fari yfir þetta mál með hæstv. ráðherra.