154. löggjafarþing — 60. fundur,  30. jan. 2024.

skautun pólitískrar umræðu .

[13:57]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrirspurnina. Ég ætla að leyfa mér að segja það hér að ég hef nú rætt merki skautunar í okkar samfélagi í mörg ár og raunar er þetta eitt stærsta áhyggjuefni mitt sem manneskju í íslensku samfélagi, hvernig við erum að sjá umræðuna verða skautaðri. Þar er margt sem spilar inn í. Hv. þingmaður nefnir málflutning einstakra stjórnmálamanna sem vissulega hefur þar áhrif en við erum líka stödd í heimi sem er að verða miklu skautaðri. Tæknibreytingar hafa haft áhrif á pólitíska umræðu. Færri en áður fylgjast með því sem gerist á Alþingi Íslendinga hér í þingsal, eins ágætt og það nú er, og fleiri taka þátt í umræðu inni í mjög lokuðum heimum á netinu. Ef hv. þingmaður er að velta fyrir sér þessari stöðu almennt þá held ég að fáir hv. þingmenn hafi rætt hana jafn mikið á undanförnum árum og ég.

Þegar stjórnmálamenn eru að ræða viðkvæm mál, og hv. þingmaður vísar í til að mynda málefni útlendinga, þá held ég að það sé, og hef áður sagt það hér, mjög mikilvægt að við reynum að ræða þau mál á breiðari grunni eins og hv. þingmaður hefur lagt til og hennar flokkur, því að það er ekki einlitur málaflokkur. Þar erum við með mjög fjölbreyttan hóp fólks. Hér er oft rætt um málefni útlendinga og innflytjenda eins og að eingöngu sé um flóttafólk að ræða eða fólk á flótta. Hér erum við með ofboðslega stóran hóp innflytjenda sem hefur hingað komið til að vinna. Erum við að ræða það nægjanlega vel hvernig við tökum á móti því fólki og ekki síður börnum þess fólks, til að mynda í skólakerfinu okkar? Erum við að ræða hvernig við erum líka sem samfélag að takast á við greinar, mannaflsfrekar greinar sem kalla á margt starfsfólk, eins og ferðaþjónustuna sem vissulega er að skapa ótrúleg verðmæti fyrir samfélagið (Forseti hringir.) en er auðvitað líka ákveðinn heimur þar sem má segja að fólk hitti sjaldan heimamenn? Það er eitthvað sem mér finnst mikilvægt að ræða og ferðaþjónustan hefur svo sannarlega verið til í að ræða. (Forseti hringir.) Ég held því að það væri freistandi að reyna að setja þessi mál í nýjan farveg, umræðu hér í þingi þar sem við reynum að fara út úr þessari skautun sem við erum að sjá.