skautun pólitískrar umræðu .
Virðulegi forseti. Með fullri virðingu fyrir forsætisráðherra þá skil ég vel að forsætisráðherra skauti m.a. yfir óeininguna á stjórnarheimilinu.
Ég er sammála hæstv. ráðherra, ef stjórnmálafólk hefur verulegar áhyggjur af þeirri skautun sem er núna að birtast okkur með einum eða öðrum hætti þá á ábyrgt stjórnmálafólk hér í þessum þingsal að vinna gegn henni, tala gegn skautuninni. Þess vegna skiptir máli að við höldum áfram m.a. með vinnu þegar kemur að útlendingamálum og ég vil undirstrika það að við Íslendingar eigum að taka vel á móti fólki. Við verðum líka að þora að viðurkenna að við getum ekki tekið á móti öllum en við þurfum hér infrastrúktúr til þess að taka vel á móti fólki, byggja upp íslenskukennslu, byggja upp farveg innan okkar góða samfélags sem tekur vel á móti fólki en við eigum ekki að leyfa skautuninni að halda áfram af því að það gerist ef ábyrgt, frjálslynt stjórnmálafólk stígur ekki fram og nýtir tækifærið og völd sín til þess að vinna gegn þessari skautun.
Ég ítreka það: (Forseti hringir.) Það skiptir máli að við þurfum núna stjórnfestu. Við þurfum stefnu og við þurfum ákvarðanir í risamálum. (Forseti hringir.) Ef við erum ekki að fara að fá þessar ákvarðanir núna á næstunni sem ýta undir framfaramál, (Forseti hringir.) er þá bara ekki komið nóg af þessari ríkisstjórn? Er ekki best að fara að horfast í augu við veruleikann og boða sem fyrst til kosninga?