Frysting greiðslna til UNRWA og aðstoð við aðrar stofnanir SÞ.
Herra forseti. Eins og oft í fyrirspurnatíma þá fengum við að heyra svona almennar vangaveltur frá hæstv. forsætisráðherra, ekki svar við spurningu eitt um hvort þetta var rétt eða röng ákvörðun, ekki svar við spurningu þrjú um norræna samstarfið en að einhverju leyti svar við spurningunni um að beina fjármagninu í aðrar leiðir. En hugsanlega gefst okkur tækifæri til að ræða þetta betur í hinum vinsælu hlaðvarpsþáttum Sjónvarpslausum fimmtudögum. Fyrir vikið ætla ég bara að bera fram eina spurningu núna til þess að hafa þetta einfalt og vonast eftir svari: Vissi hæstv. forsætisráðherra af ákvörðun Íslands um að frysta greiðslur til UNRWA áður en tilkynnt var um þá ákvörðun opinberlega?