barnaverndarlög.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Betur má ef duga skal. Ég velti því þá fyrir mér: Hefur t.d. verið á teikniborðinu með öllum þessum nefndum og stýrihópum og ráðum og öllu, hefur verið talað um að setja raunverulega upp alþjóðlegan skóla eins og við þekkjum í löndunum nánast alls staðar í kringum okkur, þar sem í rauninni er verið að reyna að taka og koma til móts við börnin og kenna þeim á þeirra tungumáli samhliða því að þau eru að aðlagast nýju samfélagi? Ég hef talað við kennara sem sitja uppi með það að vera með 28–30 nemendur í bekk þar sem eru töluð átta tungumál. Hvernig dettur nokkrum einasta ráðherra eða kjörnum fulltrúa eða bara nokkrum einasta einstaklingi í hug að svoleiðis geti gengið upp, að það sé í rauninni til þess að efla áhuga nemendanna á því að læra eða láta sér líða vel í kennslustundinni sinni og í kennslustofunni sinni? Ég sé fyrir mér að við þurfum að gera miklu meira og þurfum að reyna að koma einhverju af stað strax, að láta ekki börnin vera búin að vera í mörg ár í þessari óvissu og vanlíðan og í rauninni varla geta lært nokkurn skapaðan hlut vegna þess að við erum ekki að gefa þeim tækifæri til þess, því miður. Við erum ekki að mæta þeim þar sem þau eru, því miður. Það fylgir því ábyrgð að vera með fjölmenningarsamfélag og sú ábyrgð er á höndum stjórnvalda að takast á við það. Fyrst við erum búin að samþykkja fjölmenningarsamfélagið þá verðum við líka að standa við að láta það ganga upp. Við verðum að byrja á börnunum okkar. Við verðum að byrja á því að þeim líði vel í skólanum. Hvar er t.d. hugmyndin um alþjóðlegan skóla á teikniborði hæstv. ráðherra, þar sem börnunum verður í rauninni kennt á því tungumáli sem þau þekkja ásamt því að fá að aðlagast inn í íslenskuna og okkar samfélag?