veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir einlægt og heiðarlegt svar sem tók í rauninni af allan vafa um það að þetta mál er ekki komið hér inn að frumkvæði atvinnuveganefndar heldur í skjóli meiri hluta hennar, eins og öll önnur mál hér eru almennt í skjóli meiri hluta stjórnarflokkanna þar sem við sem erum í minni hluta, í stjórnarandstöðu, höfum harla lítið um málin að segja. Hv. þingmaður hefur fengið marga tölvupósta þar sem hann er hvattur til dáða ásamt nefndinni til þess að kvótasetja grásleppuna. Ég er ekki enn þá búin að gleyma Verbúðinni góðu og býst við að verið sé að hlaða í 2. kafla hvað það varðar. Ég held, a.m.k. ef litið er á þann póst sem ég hef fengið, að þeir séu ekki færri — enda sagði hv. þingmaður í upphafi framsögu sinnar með frumvarpinu að það væru skiptar skoðanir — og ég hef ekki síður fengið bréf frá grásleppusjómönnum sem trúa því ekki að það eigi eina ferðina enn að kvótasetja tegundir af sjávarauðlind okkar Íslendinga. Sitt sýnist hverjum og við eigum eftir að takast á um málið. Hv. þingmaður sagðist áðan vonast eftir fjörugum umræðum. Það mun ekki standa á Flokki fólksins og þessari konu sem hér stendur að vera með stuð í þessari umræðu vegna þess að þetta er mér algjört hjartans mál. Ég kem úr litlu sjávarplássi þar sem búið er að þurrka út allan kvóta. Tröllaskagi er orðinn gjörsamlega berstrípaður og allsber og verið er að leggja sjávarplássið mitt, Ólafsfjörð, gjörsamlega í rúst af misvitrum stjórnmálamönnum og hagsmunagæsluaðilum fyrir fáa útvalda sægreifa. Í þessu tilviki á að kvótasetja grásleppu fyrir örfáa karla til að senda þeim nokkrar milljónir á silfurfati af því að þeir nenna ekki lengur að fara að sækja grásleppuna heldur ætla þeir að selja hana eitthvert annað.