veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það komu ekki margar spurningar fram í þessari öflugu ræðu hennar en ég vænti góðs af samskiptum og samræðum um þetta ákveðna mál. Það liggur í hlutarins eðli að það er mjög eðlilegt að það séu skiptar skoðanir á því þegar fjallað er um auðlindir hringinn í kringum landið og sitt sýnist hverjum hvað það varðar. Hv. þingmaður kom inn á að búið væri að tæma sjávarplássið hennar. Væntanlega hefur hún verið að tala um Ólafsfjörð í þessu tilfelli, á Tröllaskaga, en ég minni á öfluga útgerð hinum megin í sama sveitarfélagi, á Siglufirði. Hún er til staðar í hlutafélagsformi, hv. þingmaður. (IngS: … fara til Vestmannaeyja, hv. þingmaður?) — Í hlutafélagsformi, þannig að það er nú til staðar enn. Nú bý ég bara þarna handan fjarðar sömuleiðis og þekki þetta ágætlega.
Hvað þetta varðar eru margir hverjir, mjög margir, hlynntir því að fara þá leið að koma á hlutdeildarsetningu grásleppu. Gerð var skoðanakönnun hvað það varðar innan þessa hóps þar sem meiri hluti studdi það að fara þessa leið. En mér finnst mjög mikilvægt að taka sömuleiðis tillit til þeirra sem ekki vilja fara þessa leið. Þrátt fyrir að við séum að koma fram með frumvarp þess efnis að hlutdeildarsetja grásleppuna þá þýðir það ekki að við í meiri hlutanum ætlum að böðlast áfram með bundið fyrir augun, ýta öllu frá okkur og taka ekki tillit til ákveðinna sjónarmiða sem koma upp. Það liggur í hlutarins eðli að alltaf (Forseti hringir.) þegar við sem hér erum komum að vinnu innan þings (Forseti hringir.) verðum við að hlusta á öll sjónarmið og því er mjög mikilvægt og hlakka ég til samskipta við hv. þingmann. (IngS: Ég vil heitan pott í garðinn.)