veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka framsögumanni fyrir framsöguna á þessu máli. Hér er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða og algjörlega óskiljanlegt að matvælaráðherra sem styðst við þingmeirihluta hér á Alþingi skuli ekki treysta sér til að leggja fram eigið stjórnarfrumvarp heldur þurfi meiri hluti atvinnuveganefndar að gera það. Það segir sitt um málið og það stefnuleysi sem er hjá núverandi ríkisstjórn í málinu.
Hv. þingmaður talaði um að það hefði mikið verið haft samband við hann, að það hefðu verið tölvupóstsamskipti og fleiri samskipti við hann og líka að hér sé verið að mæta ósk þeirra sem stunda veiðarnar og þess vegna sé mikilvægt að taka upp málið og tók líka fram að það hafi komið upp mikil veiði árið 2020, aðallega fyrir Norðurlandi en ekki minni annars staðar. Þannig er nú með sjávarauðlindina og fiskinn að hann er á mismunandi stöðum á mismunandi tímum og það getur veiðst meira fyrir Norðurlandi en Suðurlandi, hann getur ekki verið á báðum stöðum í einu þegar verið er að veiða, svo mikið er víst.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er þetta: Í 75. gr. stjórnarskrárinnar, um atvinnufrelsi, segir, með leyfi forseta:
„Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess.“
Það að verið sé að mæta óskum þeirra sem stunda veiðarnar og það séu tölvupóstsamskipti og verið að hafa samband og verið að þrýsta á þingmenn að breyta lögunum, það eru ekki almannahagsmunir, það bara er það ekki. Ég get ekki séð að það séu neinir almannahagsmunir sem séu rök fyrir þessu lagafrumvarpi sem eru að skerða atvinnufrelsi enn þá meira en orðið er með núverandi dagakerfi. Ég get ekki séð það. Ekki er það verndunin. Það er ekki verið að auka verndun á grásleppu með þessum veiðum. Spurningin er þessi: Hvaða almannahagsmuni er verið að vernda með þessu frumvarpi?