veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir spurningarnar. Hann spyr út í almannahagsmuni. Það er nú þannig að þegar lögfræðingur spyr leikmann þá þurfa menn stundum að fóta sig á svellinu hvað það varðar. En eins og ég sé þetta fyrir mér, þegar þú setur eitthvað í lög er það þá væntanlega gert til þess að horfa á það að þú hefur ákveðna arðsemi og menn hafa þá einhvern vissan aðgang, fyrirsjáanleika, í því sem fyrir þeim er en ekki það að menn séu að stunda hér einhverjar ólympískar veiðar o.s.frv. Við þekkjum þetta alveg og erum búin að fara marga hringi varðandi strandveiðarnar sömuleiðis og vitum alveg að þar skiptumst við nú eftir kjördæmum um hvað sé heppilegt að gera í þeim samanburði.
Hv. þingmaður kom inn á það og vitnaði til ársins 2020, sem er hárrétt, en þá var það þannig að almannahagsmunir þeirra sem búa á Vesturlandi voru hafðir að engu vegna þess að aðrir sem höfðu sama leyfi til að stunda sama veiðiskap, veiddu upp allt það æskilega magn sem fyrir var og ákveðið var að veiða. Það hljóta að vera almannahagsmunir fyrir kjósendur hv. þingmanns í Norðvesturkjördæmi að það sé þá staðið að því að menn geti með einhverju móti stundað þessar veiðar frekar en að menn bíði bara eftir því hvernig vindar blási o.s.frv., að menn hafi þá einhvern fyrirsjáanleika í þeim veiðum sem fram undan eru sömuleiðis.