veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Þó svo að ég sé ekki alveg sammála, ég bara óttast þetta en ég heyrði hvað hann sagði, þá vona ég heitt og innilega að það verði tekið tillit. Ég vona heitt og innilega að það verði hægt að taka tillit þannig að flestir og helst allir verði sammála og sáttir, en ég efast um það. Og ég spyr mig: Af hverju í ósköpunum má grásleppan ekki bara vera utan kvóta? Af hverju þarf að setja þetta í þennan farveg? Má hún ekki bara vera ein af þessum undantekningum frá reglunni? Af hverju þurfum við alltaf að setja allt í sama boxið og búa allt til eins? Einhvern veginn virðist það vera mottóið að setja allt sem hreyfist í sjónum í kvóta, bara vegna þess að þið getið sett það í kvóta en ekki af því að það sé þörf á því. Eða af hverju telur hann svona lífsnauðsynlegt að setja grásleppuna í kvóta að það þurfi að drífa þetta af?