veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Það er eiginlega sárara en tárum taki að standa hér í þessari samþjöppun á aflaheimildum, samþjöppun á auðlindinni okkar á fárra hendur, að vera enn eina ferðina að berjast fyrir því að einkavæða og koma fiskinum okkar á fárra hendur sem geta í rauninni keypt og selt framsal hægri vinstri, upp og niður, út og suður. Og eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, sagði áðan í ræðu sinni þá verður þetta svona eða hinsegin. Það er góð spurning: Verður þetta svona eða verður þetta hinsegin? Okkur í Flokki fólksins er nákvæmlega sama hvernig það verður svo framarlega sem þetta verður ekki kvótasett. Það er með hreinum ólíkindum að horfa upp á það að í annan stað er talað um sameiginlega auðlind þjóðarinnar á meðan á hinni blaðsíðunni er endalaus samþjöppun á fárra hendur þar sem í raun og veru er verið að mergsjúga sjávarplássin hér hringinn í kringum landið.
Mig langar líka að leiðrétta hv. þingmann aðeins þar sem honum varð smá fótaskortur á tungunni áðan þegar hann var að tala um 5,3% í sambandi við grásleppuna. Það er í rauninni það heildarviðmið sem við miðum við í sambandi við strandveiðina, bara eins og hún leggur sig, bara allan strandveiðiflotann. Hann á að skipta með sér þessum 5,3%. Það hefur ekki verið nein óráðsía í grásleppuveiðum hér síðasta árhundraðið, bara alls ekki. Eins og hv. þingmaður réttilega bendir á í ræðu sinni hér áðan, Þórarinn Ingi Pétursson, þá náttúrlega er grásleppan eðli málsins samkvæmt eins og annar fiskur með sporð og ugga og hún er hreyfanleg í kringum landið þannig að það er mismunandi eftir svæðum hvar gæftirnar eru mestar og bestar hverju sinni. Það liggur í hlutarins eðli og stundum hefur gefið mjög vel fyrir austan, annars vegar fyrir norðan og hins vegar fyrir vestan. Það fer náttúrlega eftir því hvernig liggur á grásleppunni þann tímann, hvernig straumar, stefnur og hiti sjávar er þann daginn. Það breytir ekki þeirri staðreynd að þegar er verið að reyna að klæða þetta í einhvern svona kjól um að það sé verið að reyna að koma á einhverri nýliðun í greininni og annað slíkt, þá veit ég ekki betur en að þeir sem hafa áhuga á því að fara að veiða grásleppu geti einfaldlega sótt um það og greitt fyrir sitt grásleppuveiðileyfi. Ég veit ekki til þess að einhver þurfi í sambandi við sína nýliðun að fara bænaveginn til kvótakarlsins og biðja hann um ölmusu, annaðhvort að fá að leigja af honum kvótann eins og við þekkjum núna eða fá að kaupa af honum nokkrar tunnur, fá að salta í nokkrar tunnur af grásleppuhrognum. Ég veit ekki til þess að við gætum ekki búið við nýliðun án þess að færa hana enn frekar á fárra hendur.
Ég er ekki búin að gleyma Verbúðinni sem mér fannst vera stórkostleg þáttaröð sem sýndi í rauninni spillinguna, sjálftökuna, græðgina og óþverrann sem gekk á þeim tíma þegar kvótakerfið var sett á, þegar framsalið var sett á. Hvernig hagsmunagæsla kjörinna fulltrúa hér hefur fengið að vaða um eins og eldur um akur; bara fyrir sig og sína, fíni pilsfaldakapítalisminn. Til dæmis bara ef maður horfir á það að við vorum að fá svar við spurningu um byggðakvóta Byggðastofnunar þar sem berlega kemur í ljós að þau litlu sjávarpláss sem eiga að fá að njóta þessara tonna — hvert haldið þið að það hafi farið? Til vina Framsóknarflokksins auðvitað; Skinney – Þinganes, stórútgerðartogarar og annað slíkt. Ekki ein einasta lonta kom að landi t.d. á Djúpavogi af þeim 250 tonnum sem Byggðastofnun átti að úthluta til þeirra. Þetta fer frekar í stórútgerðina í Kópavogi.
Maður er eiginlega búinn að fá ógeð á þessu kerfi eins og það leggur sig og þegar við erum að horfa upp á það núna, talandi um að vanda umgjörðina um málið, fá fleiri umsagnir — Frú forseti. Við í atvinnuveganefnd vorum búin að fá allar umsagnir, bæði sem við óskuðum eftir og þeirra sem bara kærðu sig um að senda inn umsagnir. Það er engu við það að bæta nema því að hæstv. matvælaráðherra koðnaði undan því að koma inn í þingið með frumvarpið um frekari kvótasetningu því það gengur þvert á stefnu hennar þingflokks, sem er Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Það gengur algerlega þvert á þeirra stefnu, enda sést það á grasrótinni sem smám saman siglir frá flokknum. Þannig að ég segi bara: Það kom glögglega fram í svari hv. þingmanns og formanns atvinnuveganefndar, Þórarins Inga Péturssonar, við mig hérna rétt áðan, það kom berlega í ljós að það var í rauninni ekki frumkvæði atvinnuveganefndar að koma inn með þetta kvótasetningargrásleppufrumvarp. Það var að frumkvæði matvælaráðherra sem flæmdist burt á síðasta löggjafarþingi, í fyrravor, og bað náðarsamlega hv. atvinnuveganefnd að koma endilega með málið hingað inn.
Svo ætla ég líka leiðrétta annað sem kom fram hjá hv. þingmanni og formanni atvinnuveganefndar, Þórarni Inga Péturssyni. Það er víst verið að leggja af alla útgerð á Tröllaskaga eins og hann leggur sig. Það er ekki bara verið að logsjóða fyrir Ólafsfjörð og eyðileggja allt sem áður við þekktum; 30–40 strandveiðibátar, 20–30 netabátar og svo voru 200 og 300 tonna línubátar fyrir utan ísfiskara á frystitogara. Þarna voru tvö risastór frystihús. Þarna voru mjög mörg saltverkunarhús. Þarna voru þrjú starfandi síldarplön á sínum tíma. En hvað er þarna núna með þessari kvótasetningu græðgisvæðingar örfárra sægreifa? Ekki neitt, ekki nokkur skapaður hlutur sem lýtur að sjávarútvegi nema enn þá örlar á einum og einum sem er að fara að veiða grásleppu. Á Siglufirði var sameining, Þormóður rammi – Sæberg, og hvað skyldi nú hafa orðið um það stóra stönduga fyrirtæki sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi hér áðan þegar hann sagði að hinum megin við Ólafsfjörðinn væri þetta stönduga og blómlega sjávarútvegssamfélag? Það er búið að selja 70% af því til Vestmannaeyja. Það er verið að segja upp og þessir sjómenn sem hafa fengið vinnu og starfa við Þormóð ramma – Sæberg, það þarf enginn að halda að þeir ætli allir að flytja til Vestmannaeyja til að halda „djobbinu“ sínu — frú forseti, fyrirgefðu, ég átti að segja vinnunni sinni.
Staðreyndin er sú að þetta mál er svo furðulega vaxið að ég er enn ekki búin að átta mig á því að það sé komið í þessu formi hér inn á hið háa Alþingi. Það er enginn annar en ráðherrann sjálfur sem samdi þetta frumvarp og smíðaði þetta frumvarp sem á að koma með þetta mál hér inn. Það á ekki að setja það í fangið á hv. atvinnuveganefnd, engan veginn. Að vísu er það náttúrlega svo að þar gilda sömu lögmál og hér í þingsal, það gilda sömu lögmál þar um einræði og alræði og meirihlutaræði. Það liggur algjörlega á borðinu að hér í þessum ágæta sal, hv. þingsal, höfum við ekkert að segja nema með góðfúslegum vilja og vitund stjórnarflokkanna. Þau 63 þingmannamál sem Flokkur fólksins hefur lagt fram á hinu háa Alþingi eru meira og minna sett í ruslið. Það er alveg sama þó að þau fari í gegnum ferli inni í fastanefndunum, þó að við fáum umsagnir um þau, þó að þau séu tilbúin í 2. umræðu hér, hið eina rétta lýðræðislega ferli, það gengur ekki eftir. Frekar hættum við þingstörfum klukkan fimm á daginn af því að það eru ekki nógu mörg mál. Eða við hættum bara klukkan tvö vegna þess að ríkisstjórnin er að daga uppi með sína málaskrá og vill frekar slökkva á ræðustólnum okkar hér og möguleikum okkar á að flytja málin og koma þeim í frekari umræður. Frekar loka þeir bara á allt saman: Við erum ekki með nein frumvörp þannig að þið, ágæti stjórnarandstöðuminnihluti sem við berum reyndar enga virðingu fyrir, skuluð ekki fá að mæla fyrir ykkar málum, þótt þau bíði hér í tugum talið eftir því að fá að ganga í gegnum lýðræðislega og eðlilega meðferð á hinu háa Alþingi. Þvílík og önnur eins vinnubrögð.
Ég hef nú staðið hér og látið gamminn geisa og stundum þrumað svolítið hátt og liggur hátt rómur og er alveg rosa reið, eins og allir segja, en það verður bara að hafa það. Þetta er bara mín ástríða. Þetta er þingmaðurinn Inga Sæland og svona er ég bara gjörsamlega af guði gerð. Þannig að ég segi bara hvorki meira né minna en þetta að í þessi sjö ár sem ég hef blásið hér þá hef ég aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum eins ég er að verða vitni að hér og nú frá hv. atvinnuveganefnd. Ég get alveg sagt ykkur það að við í Flokki fólksins, og ég held að ég geti sagt það líka að ég hafi fundið það hjá félögum okkar í Pírötum, erum algjörlega á móti því hvernig við erum að færa sjávarauðlindina á hendur fárra og þjappa saman með alls konar ryki sem er verið að gusa hér í augun á kjósendum og fólkinu í landinu. Hér ganga fullar fötur af ryki í allar áttir, blekkingarryki, til þess að reyna að sannfæra fólk. Ég held að við höfum sannfærst nóg þegar kvótakerfið var sett á hér upp úr 1980, þegar allt átti að verða svo miklum mun betra. Þegar við áttum að vera innan átta ára farin að veiða 400.000 tonnum meira af þorskígildi en við gerðum þegar kvótasetta kerfið var sett á.
En hver skyldi staðan vera í dag? Jú, við veiðum ekki sporði meira. Þetta kerfi er búið að vera við lýði hér í hátt í 40 ár og hver er ábatinn? Enginn. Við höfum hins vegar komið á þannig kerfi að við höfum látið viðgangast hér brottkast, svo tugum prósenta skiptir, af veiddum afla upp úr sjó. Og af hverju skyldu sjómenn sjá sig tilneydda til að fleygja verðmætum dauðum aftur í hafið? Jú, vegna þess að stjórnvöld refsa þeim fyrir að koma með aflann að landi í stað þess að kúvenda og verðlauna þá fyrir að koma með aflann að landi án þess að klekkja á þeim hvað þennan blessaða kvóta þeirra snertir. Nei, þá er þeim refsað fyrir það. Það liggur alveg á borðinu að þegar Hafrannsóknastofnun er að gefa út sínar veiði- og aflaheimildir þá hefur hún ekki hugmynd um á hvaða forsendum hún á að gera það. Hún hefur ekki hugmynd um hver raunverulegur veiddur afli er hér upp úr sjó.
Þetta er alveg eins með kvótasetningu á grásleppu og að klæða það í alls konar furðubúning. Það er ekkert sem var að veiðum á grásleppu, ekki neitt. Það að tala um það að einhverjir verði nú að fá eitthvað fyrir sinn snúð, það verði kannski að verðlauna þá grásleppuveiðikalla sem ætla ekki að veiða lengur og rétta að þeim einhverjar milljónir með því að kvótasetja þetta og láta þá halda áfram að vera í áskrift með því að leigja frá sér grásleppuna, selja frá sér kvóta. Það er varla hægt að ljúga upp á þetta. Þetta er að verða einn furðulegasti farsi sem ég hef nokkurn tíma orðið vitni að og er ég þó komin á sjötugsaldur. Hversu lengi og í hversu mörg ár telur hið háa Alþingi og stjórnarliðar að sé hægt að ljúga að þjóðinni? Hversu lengi er hægt að endurvinna sama ruglið og gusa því í andlitið á þjóðinni?
Við í Flokki fólksins segjum: Heyrðu, við erum búin að fá nóg af þessari endurvinnslu. Þó að við séum enn þá að vaska upp þessar mjólkurfernur erum við búin að fá nóg af þessari endurvinnslu sem felst í því að ljúga því að okkur að það sé best að kvótasetja allt sem siglir hér í kringum landið. Við eigum auðlindina. Við eigum sjávarauðlindina og við höfum allan rétt til að selja hana frá okkur, fá að leigja hana frá okkur. Við eigum að fá alla arðsemi af því. Hún er okkar. Eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson bendir réttilega á áðan í sambandi við 75. gr. stjórnarskrárinnar um atvinnufrelsi þá má ekki skerða nema sérstakir þjóðhagslegir hagsmunir standi þar að baki. Það er algerlega á hreinu að það varðar enga þjóðarheill að kvótasetja grásleppu nema fyrir örfáa karla sem vilja fá gefins milljónir af okkar skattfé bara sisvona, til að vera áskrifendur að því sem eftir er, að geta leigt það og selt til einhverra annarra. Nýliðunin er til staðar. Við seljum veiðileyfi. Það er á okkar borði.
Frú forseti. Öðruvísi mér áður brá en nú er þetta algerlega komið út fyrir allan þjófabálk. Við í Flokki fólksins munum aldrei, aldrei, aldrei láta þetta frumvarp ná fram að ganga.